Skyndihjálp og endurlífgun
Í bókinni eru mikilvægustu atriði skyndihjálpar sett fram á einfaldan og aðgengilegan hátt fyrir almenning. Af bókinni má læra skref fyrir skref hvernig bregðast á við í neyðartilfellum en hver umfjöllun hefst á spurningunum: „Hvað sérðu?“ og „Hvað gerirðu?“ .
Bókin „Skyndihjálp og endurlífgun – 2012” er handhægt uppflettirit sem ætti að vera til á hverju heimili og nota má á öllum námskeiðum í skyndihjálp jafnt stuttum sem löngum.
Þær aðferðir skyndihjálpar sem lýst er í bókinni eru í samræmi við leiðbeiningar Endurlífgunarráðs Evrópu frá árinu 2010 hvað varðar grunnendurlífgun og leiðbeiningar Rauða krossins um skyndihjálp frá árinu 2011.
Hægt er að nálgast kennslubókina og önnur kennslugögn á skrifstofu Rauða krossins, Efstaleiti 9, sími 570 4000. Kennslubókin kostar í lausasölu 3.600 krónur með vsk.
Cart
Skyndihjálp og endurlífgun
3.600 kr.